Handbolti

„Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sigurður Bragason var stoltur af leikmönnum sínum. 
Sigurður Bragason var stoltur af leikmönnum sínum.  Vísir/Diego

Sigurður Bragason, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handbolta, gengur sáttur frá borði þrátt fyrir að markmið liðsins um að verða Íslandsmeistari hafi ekki gengið upp. Valskonur ruddu Eyjakonum úr veginum en niðurstaðan í rimmu liðanna var 3-0 Val í vil. 

„Við vorum flottar í fyrri hálfleik en þegar líða tók á leikinn fóru leikmenn mínir eðlilega að þreytast mikið og þar með misstum leikinn úr höndunum. Sunna og Elísa spiluðu í hjarta varnarinnar nánast allan leikinn og það er óraunhæft að ætlast til þess að þær geri það að fullum krafti allan leikinn gegn jafn sterku liði og Valur hefur á að skipa,“ sagði Sigurður eftir að ljóst var að ÍBV væri úr leik. 

„Við söknuðum Britney Cots sem var fenginn fyrir tímabilið til þess að styrkja varnarleikinn en meiddist svo. Þá erum við að missa 500 mörk úr liðinu þegar það verður ljóst að Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir getur lítið sem ekkert spilað og Harpa Valey Gylfadóttir og Ásta Björt Júlíusdóttir verði ekki með okkur,“ sagði Sigurður enn fremur. 

„Eins og staðan er núna er þetta bara munurinn á liðunum. Við stefndum að því að berjast um Íslandsmeistaratititilinn. Það varð hins vegar ljóst í nóvember að það við ramman reip að draga vegna meiðsla sem við urðum fyrir hjá lykilleikmönnum. Það jákvæða er aftur á móti að yngri leikmenn fengu stærra hlutverk og uxu og döfnuðu með hverjum leik. Ég verð áfram í brúnni og við setjum stefnuna á að búa til lið sem getur keppt um alla titla á næstu lektíð,“ sagði þjálfarinn keikur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×